Hlutverk foreldraráðs
Í nýjum lögum um leikskóla kemur fram eftirfarandi:
Kjósa skal foreldraráð við leikskóla og skal leikskólastjóri hafa frumkvæði að kosningu í ráðið. Í foreldraráði sitja að lágmarki þrír foreldrar. Skal kosning til foreldraráðs fara fram í september á ári hverju og skal kosið til eins árs í senn. Foreldraráð setur sér starfsreglur. Leikskólastjóra ber að starfa með foreldraráði. Leikskólastjóri getur sótt um undanþágu til sveitarfélags um stofnun foreldraráðs ef gildar
ástæður eru fyrir hendi, svo sem vegna fámennis í leikskóla.
Hlutverk foreldraráðs er að gefa umsagnir til leikskólaog nefndar, sbr. 2. mgr. 4. gr., um skólanámskrá og aðrar áætlanir sem varða starfsemi leikskólans. Þá skal ráðið fylgjast með framkvæmd skólanámskrár og annarra áætlana innan leikskólans og kynningu þeirra fyrir foreldrum.
Foreldraráð hefur umsagnarrétt um allar meiri háttar breytingar á leikskólastarfi.
Handbók foreldraráða í leikskólum
Stjórn foreldraráðs skólaárið 2021 - 2022
Guðvarður Björgvin F. Ólafsson - beggi@gbfo.net, 840-1977
Ívar Daði Þorvaldsson - ivarda@gmail.com, 867-1925
Páll Daníelsson - pallidaniels@gmail.com, 696-6851